|
Mallorca!
Fyrir 1622 dögum
|
20.02.2008 16:40:57 / Manda
Það verður bara að segjast að ég er ekkert voðalega sátt við blog.central lengur en það er alltaf með einhverja bévítans stæla við mig... Svo ég ætla að segja bless við þessa síðu og færa mig á gömlu síðuna sem ég drullaði yfir síðast áður en ég færð mig hingað inn.. En sjáum til hvernig þetta fer..
mandy.bloggar.is
Amanda
»
09.02.2008 23:56:57 / Manda
VÁ!!! Var að fá afmælisgjöfina mína frá kallinum (þótt ég eigi ekki afmæli fyrr en eftir rúman mánuð) og hann er brjálaður! Hann keypti handa mér fartölvu!!! Svona rosalega sæta macbook hvíta... Er ennþá að jafna mig eftir sjokkið 
Vildi bara deila þessum brjálæðisgangi mér ykkur! Ég er glaðasta stelpa í öllum heiminum 
(Prumpublogg þetta ef kallast má blogg!!)
»
07.01.2008 02:04:02 / Manda
Alltof langt síðan ég dritaði einhverju niður hérna síðast, ákvað því að hunskast til að slétta á ykkur svona til að láta vita að ég er ennþá til! Desember er búinn að vera yndislegur mánuður, en ekki hvað! Fullt af kökum og sælgæti og fleira góðgæti enda hef ég ekkert verið að passa mig neitt mikið. Passa ekki lengur í buxurnar sem ég passaði í fyrir 3 mánuðum og alla vega 4 búnir að spyrja mig hvort ég sé að fara að fjölga í heiminum svo það held ég segjir allt sem segja þarf. ~Í desember, 14 desember nánara tiltekið áttum við hjúin 2 ára afmæli sem okkur finnst bara heill hellingur og í tilfefni dagsins ákvað hinn helmingurinn að koma mér á óvart og bjóða mér til London..! Ef ég vissi ekki að ég ætti besta kærasta í heimi(sem ég hef alltaf vitað þá fékk ég fullvissu þá! Ótrúleg upplifun og mjög rómantískt líka og mér fannst ég ekkert smá ,sufistikeited, svona utan við þær stundir sem við stoppuðum og drógum upp kortið þegar við villtumst, vildum ekki virðast vera einhverjir helvítis túristar! ~Ég eyddi jólunum með hinum helmingnum í fyrsta skipti sem var alveg yndislegt og gamlárskvöldi líka, sem var....líka yndislegt held ég. . Man ekki mikið en endaði með sár sem kom mér upp á sjúkrahús(reyndist svo bara skráma sem blæddi mikið úr), náði að eyðileggja djammið fyrir maríu vinkonu og náði að togna.. Talandi um alvöru djamm! Ætla að henda inn myndum frá London og áramótunum þegar ég nenni, finnst nú bara alveg nógu mikið framlag að hafa bloggaðJ ~Ætlaði að koma með eitthvað svaka uppgjör frá árinu 07 en nennti því ekki. Læt nægja að segja að þetta var eitt besta ár lífs míns og ég hef aldrei verið jafn hamingjusöm! Ekki slæmt Hef fulla trú á því að 08 verði enn betra! Gleðilegt nýtt ár allir saman Kv. Amanda sem ætlar að reyna að vera duglegri að blogga Heh skoðið þetta: http://youtube.com/watch?v=nK_Jv4RIzpU
»
07.12.2007 15:53:57 / Manda
Í dag er ég í svo miklu jólaskapi..! Ég og Andrés ákváðum í gær að fara í jólagjafa búðarleiðangur í dag sem og jólahreingerninguna en bakið á mér er með kjaft svo í staðinn ákváðum við að kúra okkur undir sæng upp í sófa með maccintonjólanammibauk og horfa á home alone 1J Gerist ekki jólalegra! Er með akkúrat engar áhyggjur fyrir tímanum framundan því eina sem ég sé er gott og jákvætt! Og ég held að áhyggjuleysi og að vera laus við eirðarleysi sé það besta sem til er í heiminum! Að vera bara fullkomlega sátt, róleg og hamingjusöm er..Já mjööög dýrmætt! Framundan:14 desember: Tveggja ára afmælið okkar Andrésar. Hann er búinn að ákveða daginn algjörlega og er búin að gefa mér eina vísbendingu en það er ,,me,,... Sagði mér að vísu ekki mikið en ef þið eruð með eitthvað þá endilega segjið mér!! 21 des: Þá fer ég í mitt vikufrí frá vinnunni og svo koma jólin jibbí! 30 des: Þá segji ég bæ við vakstjórann og fer aftur að vinna eitthvað smátterí og fer aftur að taka við skipunum...Ojjj Og svo næsta ár: en þá fer ég væntalega ískóla í skemmtilegar einingar, hætti að vera fattí þar sem ég nenni að mæta í ræktina og held áfram að vera hamingjusömJ Góðir tímar Þið verðið að skoða þetta fyrir neðan, þetta er alveg yndislega sóðalega fyndið!! http://youtube.com/watch?v=1uwOL4rB-go Kv.Amanda
»
04.12.2007 00:11:37 / Manda
Þetta er BARA snilld Skylda að skoða þetta! Yndislega æðislega töff þessi gaur og kynþokkinn uppmálaður!!! http://youtube.com/watch?v=ZA1NoOOoaNw
»
28.11.2007 20:30:28 / Manda
Halló! Erbara að líta inn og segja hæ og líka til að láta vita að ég var að henda inn myndum frá Litlu-Jólum Greifans.. Ekki nærri því allar myndirnar því að vitlausa og frekar fulla Amanda ákvað að eyða gömlum myndum af myndavélinni en eyddi óvart út örugglega helminginum af þeim myndum sem hún var nýbúin að taka!!!!!!! Og ps. ég ætla aldrei að drekka aftur. Pss. Hvað er eiginlega málið Extreme makeover:home edition...!!! Grenja alltaf eins og vitleysingur þear ég horfi á þessa þætti,er ég óeðlileg eða eru þeir bara sova fríking væmnir!? Amanda vitleysingur
»
15.11.2007 12:46:40 / Manda
Ég er mjög bitur í dag..!¨Og hef svo sannarlega mínar ástæður fyrir því. Á morgun eru Litlu-jól Greifans og þá er gaman að vera sæt... Því fylgir semsagt að ég ´þarf að finna mér nýjan kjól, svo ég sé ekki asnaleg að fara í sama kjólnum og ég fór í síðast, þarf að fara í ljós svo að það sé ekkert ruglast á mér og líkinu semliggur undir rúmi, þarf að plokka augabrýrnar þar sem ég er komin með júnibrán, þarf að gera eitthvað við hárið á mér þar sm ég var að klippa á mig topp sem ákvað að vera leiðinlegur og láta aldrei að stjórn og þarf að vera búin að kreista ógeðslegu bóluna á hökunni sem ákvað að banka upp á og heimsækja mig ... Keyrði til Reykjavíkur bara til að finna kjól, fór í smáralindina og kringluna og fann ekki kjól... Jæja allt í lagimeð það..Ákvað að vera asnaleg og fara í sama kjólnum og ég fór í síðast og hoppa í hann og máta hann.. Anda inn, vippa honum yfir haus, renni upp, anda frá mér og púmm.... Rennilásinn gefur undan og springur undan fattí fattí bomb bomb! Allt í einu heyrði ég í fitunni, heyrði skvapið og fann hana hlægja af mér, labbaði að speglinum með tilheyrandi skvaphljóði og fann jörðina titra. – Ég er feit. Gvöð..! Ég komst ekki í ljós því þeir áttu ekki tíma,ég finn ekki plokkarann minn, toppurinn minn vill ekki ennþa hlýða og helvítis bólan er með skæting- og ég er feit..! Eins og ég segji... Ég er bitur!!!!!!!!!!
»
06.11.2007 01:29:29 / Manda
Ég er komin með nýtt æði..! En það er að vafra um á barnalandssíðum og skoða bumbumyndir!!! En hrikalegt... Stend alveg föst við það að ég vil ekki eignast barn, þau eru svo mörg leiðinlegog erfið.(Það styrkir skoðun mína að vinna á Greifanumþar sem börnin eru flest skrímsli í mannsmynd, öskra og frekjast í foreldrunum sem eiga sér ekki viðurreisnar von!) En þó ekki þegar þau eru pínuponsulítil, krumpuð og geta eki talað eða hreyft sig mikið, þá eru þau yndisleg..! (Veit að þetta er allt öðruvísi þegar þetta er manns eigið......o.s.f..... Þess vegna finnst mér skrítið hversu mikið það er farið að klingja í eggjastokkunum mínum! Sérstaklega þegar ég sé óléttar konur eða konur með lítil börn á brjósti og svo framvegis sem ég fæ að sjá nóg af á Greifanum. Lýst ekkert á þetta... Hefði ekkert á móti því að vera ólétt samt, bara á meðan barnið fer ekki að brasast við að reyna að troða sér út! Humm..Klingj klingj..... En þarf ekki að örvænta því í apríl á næsta ári verð ég móðursystir í þriðja skiptið og fæ að fullnægja þörf minni. Það er svo gott að geta skilað þeim aftur Alfa, ég ,lofa, að passa oft og mörgum sinnum þegarþað er ennþá lítið og krumpað og kannski nokkrum sinnum eftir þaðJ Ég er svo góð systir... -Núna er 5nóvember og Hagkaup er að sjálfsögðu búið að skreyta hátt og lágt. Jólaauglýsingar eru búnar að yfirtaka dagskránna og það er farið að selja jólanammi í tugavís í búðunum. Það versta við þetta allt saman að ég er mjög áhrifagjörn og ég er komin í, held ég, mesta jólaskap sem ég hef komist í síðan ég var lítil stelpa! Gómaði sjálfa mig í því að ná 25 jóladiska á netið og fór einnig í búðarferð til að leita að jólafötum og jólagjöfum... Svo er ég gólandi jólalög. Þau eru gerð til að fá á heilann!!!Jingle bells, jingle bells jingle all the way..(Segðu mér síðan að þú sért ekki að syngja þetta núna, hvort sem þú sért að raula þetta í hausnum eða upphátt...!) Ég vil ekki vera í jólaskapi, það er bara byrjun nóvembers for god sakes!! - Uppgötvaði svoldið hræðilegt í dag... Ég er karlremba. Fattaði það þegar ég var nýbúin að borða matinn sem Andrés var búinn að vera sveittur við að elda, (meðan ég var að sötra kók og borða flögur og horfa á sjónvarpið og ég lá með bumbuna upp í loftið upp í sófa og lét hann nudda á mér tásurnar...! Fattaði líka að ég man ekki lengur hvernig þvottavélin lítur út né hvernig vaskurinn lítur út. Það birtast alltaf hreinir diskar og glös upp í skáp,eins og fyrir töfra,allt voða þægilegt auðvitað en kannski ekki alveg sanngjarnt,svo ég ætla að reyna að breytast til batnaðar. En það er ljúft að vera karlremba! -Átti eina verstu vinnuhelgi sem ég hef upplifað á Greifanum og ég fór næstum því að grenja. Fólk getur verið svo mikið fífl og veit ekki hvað það þýðir að vera tillitsamt...! Þetta var vægast sagt brjálað kvöld auk þess sem það kom 30 manna hlaðborð rúmlega 10 leytið og 10 manna hópur líka og auðvitað dúlluðu þau sér þangað til um tíu mín yfir 12 en þá sagði ég þeim kurteislega að ég væri orðin nett pirruð á þeim og þau mættu alveg fara að hypja sig. Auðvitað orðaði ég þetta settlega. Loksins komu þau sér og þá átti auðvitað eftir að loka öllum sölunum þremur svo ég var komin heim um hálf 2, skemmtilegt!!! Ojj... Það er yndislegt að vera í fríi! Er farin að lúlla mér..! Klapp fyrir mér sem bloggaði! Tvöfallt klapp! Ps. Hverjir upplifa svona morgunprump þegarþeir eru að sinna fyrsta pisseríinu sínu á morgnana, rétt upp hönd? Pss. Nenni ekki að vera í fýlu lengur. Svona helst því að Kata sagði að ég væri ljót án þess að brosa..! Svo núna ætla ég að brosa-Alltaf. Starting now..   Mandý Her tears don‘t fall...They crash all around me.
»
12.10.2007 22:36:21 / Manda
Ég er ekkert smá stolt af mér, þriðja bloggið á þetta stuttum tíma.I'm on að roll!! Eða ef blogg má kalla, nenni ekki að koma með einhvern svaka pistil því þá myndi ég fara að væla um hvernig mér líður akkúrat núna og sú líðan er ekkert sú besta í heimi. Svo ekkert alvöru blogg í þetta skipti bara svona ,,hæ, hér er ég, bæ,,....... Henti inn myndum úr oktoberfesti Greifans..! Fullt af myndum, nennti ekki að setja inn nærri því allar og hvað þá að skrifa við þær.. Geri það kannski einvherntímann við tækifæri. Life is a bitch...and then you die...Great. Amanda fýlupoki
»
08.10.2007 20:16:49 / Manda
Ahhhhhh.... Frí..... Erfið vinnuhelgi búin og tveggja daga frí tekið við! Og kallinn minn kominn aftur frá RVK svo ég gæti ekki verið hamingjusamari! Jámm eins og ég sagði:erfið vinnuhelgi en það var alveg ágætur slatti að gera þar svona eins og vanarlega..! Var farin að hlakka til vetrar í sumar þvi þá yrði svo lítið að gera og var farin að hlakka til að geta bara setið borað í nefið og lesið bækur og svo framvegis..Í staðinn var auðvitað bara cuttað niður starfsfólk og fólk virðist almennt ekki gera sér grein fyrir því að það er kominn vetur, það er kalt úti og því á það bara að borða heima hjá sér!!! Ætla að gefa því mánuð í viðbót en þá er eins gott að það fari að átta sig á hvernig hlutirnir eiga að virka fyrir sig... Annað sem ég hata við vetratímann er að fólk tekur sig til og ákveður að fara á greifann korteri fyrir lokun....ÁKVEÐUR það þá og er komið 4 mín fyrir lokun...Þetta gerist oftar en ekki og er..jámm böggandi. Bara til ykkar sem lesa bloggið mitt Annars náðum við Helga að loka á mínútunni á laugardaginn ótrúlegt en satt sem var mjög jákvætt því við ætluðum að skella okkur í Sjallann.. Hoppuðum svo til Jöru og Brynju eftir vinnu og tókum hraðamet í drykkju(mamma: Drukkum auðvitað bara vatn...) Ótrúlega gaman í Sjallanum... Fórum svo í smá eftirpartý til Jöru þar sem ég ,sofnaði“ mjög fljótlega sem var MJÖÖÖÖG svo sniðugt, átti að vakna 5 tímum seinna í vinnuna og loka í þokkabót. Hitti svo Maríu gæsku þarna(gooooott að sjá þig þótt það hafi verið svona stutt!!!!!....) og Steinunni sem var að barþjónast eitthvað...Munur að fá frían drykk Annað kvöld er síðan oktoberfestJ !!Geggjað.. Nenni ekki að blogga meira......Ætla að skella mér í sturtu og fara síðan á Stardust! Held að hún verði yndisleg..elska ævintýramyndir.... Manda panda
»
04.10.2007 01:42:28 / Manda
~Nenni ekki að biðjast afsökunar á þessari löngu fjarveru frá bloggheiminum, stundum fær maður ritstíflu og í mínu tilfelli er hún búin að sitja í mér í þetta langan tíma.. Er í rauninni enn með stíflu en ekki þannig að ég stroki út hvert orð sem ég skrifa hérna... Er augljóslega komin heim frá Mallorca fyrir svoldið löngu síðan en bara nennnnnni ekki að skrifa inn ferðasögu núna svo ég læt nægja að setja inn myndir frá ferðinni! Set inn langa og skemmtilega ferðasögu inn seinna! (ef ég nenni..) ~Annars er allt ennþá við sama gamla heygarðshornið og lífið gengur sinn vanagang.. Ég geng hægt í gegnum gleðinnar dyr eins og mamma gamla segir mér að gera, kannski einum of hægt en það er bara núna þetta tímabil.. Þangað til að ég finn mitt áhugasvið. Var farin að standa í þeirri trú að ég væri búin að finna það svið mitt en það var að horfa á sjónvarpið og borða nammi og drekka kók. Það er nú einu sinni sagt að maður eigi að finna sér eitthvað sem maður hefur áhuga á og finnst skemmtilegt og þetta er einmitt það sem mér fannst ánægjulegt og lífsfyllandi og skemmtilegt! En eftir nokkra mánuði(ehh 16 ár) af þessu sama sukki og sjónvarpsglápi þá hef ég komist að annarri niðurstöðu, ekki þeirri sem ég vildi komast að samt.. Það væri nefnilega svo fjandi þægilegt ef þetta væri mín köllun í lífinu, en maður fær víst ekki alltaf allt sem maður vill...!!! Svo núna er ég á byrjunarreit. Langar að vera sú manneskja sem fær sér bara nammi á laugardögum, sem fer í ræktina 4x í viku, sem borða hollt og vel, sem fer að sofa á skikkanlegum tíma,sem vaknar eldhress á morgnanna, sem les frekar en að glápa á sjónvarpið, sem nennir að taka til og helst í bílnum sínum. Heilbrigð manneskja með markmið og sem veit hvað hún vill!!! That's easier said than done.....! Það er erfitt að vera til stundum Kv. Amanda kjánabjáni
»
18.08.2007 01:04:47 / Manda
Ég líður ekkert smá skringilega... Gleði, hamingja, eirðaleysi, spenna, kvíði... Langar að fá útrás, fara út að hlaupa sprikla en sjensinn að letipúkinn ég nenni því... Bætir heldur ekki að það er ótrúlega kalt úti og svartamyrkur þar að auki. Var nefnilega að uppgötva að sumarið er að klárast og ég er búin að ætla að gera svo mikið þetta sumar sem verður víst bara að bíða þangað til næsta sumar! Ótrúlegt hversu fljótt tíminn líður.... Nú eru líka bara 3 dagar þangað til að ég ætla að hefna mín á Andrési og skilja hann eftir hérna með ískaldan rassinn!!! Og loksins getur fólk andað léttara, þá mun ég hætta að pirra fólk með niðurtalningu minni á ferðinni en núna eru held ég 8 mánuðir síðan við ákváðum að fara í þessa ferð og ég byrjaði að telja niður..! Ætlum semsagt að liggja í sólböðum og horfa á sæta stráka í viku áður en við snúum aftur til baka í kuldann og í hversdagsleikann! Æji ætli það sé ekki ágætt hérna líka. Hef ákveðið að fara í fjarnám, eitthvað smátterí bara svo ég virðist hafa eitthvað merkilegt við líf mitt að gera, og svo hef ég tekið við vakstjóranum á Greifanum sem ætti að halda mér eitthvað uppteknri...uptekinni... uppteknarinni...(Vó hvernig skrifar maður þetta J haha) Ætla að fara að sækja hinn helminginn í vinnunna..................Allir að klappa fyrir einu stykki bloggi frá mér!J Lag dagsins:The kill. 30 seconds to mars.(Gott lag og Jared leto syngur það
»
09.08.2007 02:24:05 / Manda
Ég er bara hálf
manneskja.
Hef aldrei fundið fyrir því áður og
það er að vissu leyti mjög óhugnaleg tilfinning....Að vera
ekki heil án hans og að finna svona mikið að það vanti hluta
af manni, það er svo sérstakt.
Er búin að
vera óvenju væmin þessa dagana enda nægur tími til að velta sér upp
úr hlutunum, og ég er búin að hugsa svoldið mikið aftur í tímann!
Hversu mikið allt er búið að breytast, hversu mikið ÉG er búin að
breytast og hversu fljótt það gerðist.. Man hversu mikið ég var
alltaf að bíða eftir framtíðinni og bíða eftir því sem myndi gera
allt fullkomið, einfaldlega að bíða eftir að verða hamingjusöm. Sú
tilfinning kom aldrei almennilega-
Nú er ég loks farin að skilja betur
hvað lífið felur í sér! Ég verð oft svartsýn og leiðinleg en ég er
svo sátt og ég er svo hamingjusöm með hvernig lífið mitt er orðið.
Ég er svo ánægð með það sem ég hef fengið upp í hendurnar, öll
tækifærin og líka stærsta hlutann af lífi
mínu.!
Já ég sagði
ykkur að ég væri orðin væmin.. Ætti eiginlega bara að hendast
upp í rúm, semja ljóð og grenja..
Það eru
samt bara 5 dagar síðan hinn helmingurinn flúði frá mér til Rhodos
og geymdi mig hér heima til að rotna.. Get samt sagt með stolti að
ég hef ekki bara afrekað það að leiðast heima að borða nammi alla
daga, sofa til 5 og glápa á dr.phil og fleira..Nei er líka að
vinna!
Og svo náði
ég líka að djamma um versló! Gaman gaman... Meira að segja
bæði föstudag og laugardag og hana nú!
Sjallinn
bæði kvöldin, föstudaginn djammaði ég við harðasta teknó í heimi,
hefði þurft að vera á einhverju til að fíla það og á laugardaginn
skelltum við okkur á Stuðmenn þar sem ég þurfti að sætta mig við að
vera 7 hjólið, ekki þriðja, sjöunda!!!!!!!!! Steinunn, Magga og
María allar að kela við kærastana sína á gólfinu og ég fékk ekki
einu sinni athygli frá öðrum strákum.... Ég MÁ vera í
fýlu.
En þetta var samt skemmtilegt þótt ég
hafi endað ein upp í rúmi..
Guðs sé lof
fyrir eggin!
Ojj...
Er farin
að sofa!
Amanda
»
22.07.2007 23:06:48 / Manda
Þessir dagar
undanfarið hafa einkennst af því sama og vanarlega en það er
auðvitað að vinna og sofa eins og ég tala um í hverju einasta
bloggi. Tala líka um hversu mikið ógeð ég er komin með á
Greifanum og svo framvegis.. Nú hef ég ákveðið af gefa þessum
stað annað tækifæri á því að vinna mig á sitt band þar sem ég
ákvað að gerast skúringakelling á Greifanum líka.
Jámm...
Ekki nóg með að ég
kvarti um að ég búi þarna heldur er ég búin að taka að mér
aukavaktir sem skúringakelling en það felur í sér að vakna klukkan
hálf 8 til svona hálf 12 og þrífa staðinn fyrir opnum. En ég er
ekki bara að skúra og leiðindast eitthvað heldur fæ ég líka að
breyta til og þrífa klósettin og fleira til. Svo að í rauninni get
ég ekki gert annað en að gefa Greifanum sjéns svona svo ég deyi
ekki úr ógeði...............!
F
ékk síma í láni og ég
hefði ekki haldið að ég yrði svona fegin eins og ég er..! Hef talað
meira við vinkonur mínar og fjölskyldu undanfarna 3 daga heldur en
síðustu mánuði fyrir það! Skelltum okkur á rúntinn á föstudaginn
sem endaði með djammi á kaffi Ak og það var auðvtaið geggjað gaman
líka þar sem ég hef ekki djammað í hálft ár eða eitthvað...
Partýpooper..
Skelltum okkur svo
aftur á laugardaginn(já mamma ég veit...!), ég, Steinunn, María og
Birgitta og það var ekkert síðra en kvöldið áður.! Fékk líka mína
15 mínútu frægð ef svomá segja!!
Þó nokkuð margir
stoppuðu mig og spurðu hvort ég væri ekki í Nylon!!!!! Einn spurði
mig hvernig mér gengi í hljómsveitinni og annar
sagði að ég stæði mig ekkert smá vel og væri uppáhaldið hans í
Nylon. Þegar sjötta manneskjan spurði mig út í Nylon þá var ég
alvarlega farin að spá í hvort ég ætti að reyna að fylla plássið
sem var að losna! Held að ég myndi taka mig vel út í Nylon! (Hversu
oft getur maður skrifað orðið Nylon í einni
setningu!!!!)Alla vega mjög skondið og það var að
vissu leyti skemmtilegt að upplifað sig sem ,celeb,
hahaha!
Ætla að fara að rotast
upp í sófa þar sem ég er að fara að opna Greifann á
morgun-jibbí!
Ps. 29 dagar í
Mallorca...!
pss. Markmið: Reyna
að blogga um eitthvað annað en Greifann næst...

Psss. Reyna að NENNA að
blogga einhverntímann og þá um eitthvað skemmtilegt.... Og
reyna að láta Ölfu ekki drulla yfir mig í
kommentum..
»
21.06.2007 02:40:18 / Manda
Nenni ekki að blogga eins og vanarlega auk þess sem klukkan er
orðin alltof margt og ég ætti að vera farin að sofa, svo ég ætla
bara að gera leiðnlega punkta í staðinn!!
- Er náttúrulega eins og vanarlega komin með ógeð á Greifanum þar
sem ég er búin að búa á honum þennan mánuðinn..!
- Er flutt í nýju íbúðina og hún er aldeilis ágæt litla greyið..
Auðvitað ekki nærri jafn flott og gamla og eldhúsið geymir
ógeðslegar flísar sem eru bleikar og grænar(hvaða snillingi datt í
hug að líma svoleiðis upp á eldhúsvegginn, hefur fengið alveg
geggjaða hugdettu; djöfull yrði hipp og cool að setja bleikar
flísar og troða nokkrum grænum inn á milli.... Alveg
fáranlegt.
- Erum búin að kaupa flatsjáinn, gegggjað að horfa á þetta
flykki!
- Er í miklum pælingum þessa dagana og það er mikið
hugserí í gangi, þarf að taka ákvörðun sem er ekki auðveldust í
heiminum.. Er svo hrædd um að taka ranga og sjá eftir því alla
ævi.. Er þá ekki betra að prufa hlutinn og sjá eftir honum heldur
en að prufa hann ekki og pæla í því hvernig það hefði verið???
- Nú er farið að styttast í yndislegu Mallorca ferðina en núna
eru akkúrat 2 mánuðir!! Ágætis verðlaun eftir sumar frá
helvíti...!!!!
- Nenni þessu ekki lengur.... Geisp..
Amanda
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|